Töluvert um þjófnaði á Suðurnesjum undanfarna daga
![logreglustod keflavik](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/logreglustod-keflavik.jpg?resize=620%2C264)
Þrjú þjófnaðarmál hafa verið kærð til lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Vörum að andvirði nær 60.000 krónur var stolið úr versluninni Ormsson í Keflavík. Þá var bakpoka stolið úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Bakpokinn innihélt fartölvu og fleiri muni samtals að verðmæti um 375 þúsund kr. Loks var brotist inn í vinnuskúr í Keflavík og þaðan stolið tveimur borvélum og fleiri munum.
Lögregla rannsakar málin.