Nýjast á Local Suðurnes

Fyrsti kafbáturinn þjónustaður – Sjáðu myndirnar!

Bandaríski kjarnorkukafbáturinn USS San Juan kom í dag í stutta þjónustuheimsókn á hafssvæðið norðvestur af Garðskaga til að taka kost. Landhelgisgæsla Íslands leiddi framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið.

Varðskipið Þór fylgdi kafbátnum frá því að hann kom upp á yfirborðið við mörk landhelginnar og fylgdi honum á meðan á heimsókninni stóð. Móttaka kafbátsins var vel undirbúin og framkvæmd í samræmi við verklagsreglur sem unnar voru í náinni samvinnu fyrrgreindra stofnanna og utanríkisráðuneytisins. Vel gekk að flytja kostinn um borð í kafbátinn.

Nánar má lesa um heimsóknina á vef stjórnarráðsins.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2023/04/26/Bandariskur-kafbatur-i-thjonustuheimsokn/