sudurnes.net
Fyrsti kafbáturinn þjónustaður - Sjáðu myndirnar! - Local Sudurnes
Bandaríski kjarnorkukafbáturinn USS San Juan kom í dag í stutta þjónustuheimsókn á hafssvæðið norðvestur af Garðskaga til að taka kost. Landhelgisgæsla Íslands leiddi framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið. Varðskipið Þór fylgdi kafbátnum frá því að hann kom upp á yfirborðið við mörk landhelginnar og fylgdi honum á meðan á heimsókninni stóð. Móttaka kafbátsins var vel undirbúin og framkvæmd í samræmi við verklagsreglur sem unnar voru í náinni samvinnu fyrrgreindra stofnanna og utanríkisráðuneytisins. Vel gekk að flytja kostinn um borð í kafbátinn. Nánar má lesa um heimsóknina á vef stjórnarráðsins. https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2023/04/26/Bandariskur-kafbatur-i-thjonustuheimsokn/ Meira frá SuðurnesjumVel vopnum búnum herskipum stjórnað frá varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli – Myndir!Miklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnGrindvíkingar völtuðu yfir Leikni og hirtu toppsætiðDregur úr krafti gossins – Sprengivirkni að mestu lokiðCruz yfirgefur Grindavík – Jimenez og Mateo verða áframValdimar sótthreinsaður og færður í slippHluti Keflavíkur án rafmagns frá miðnættiLúxusinn í fyrirrúmi um borð í A – Myndband!TikTok-stjarna villtist í ReykjanesbæYfir 30.000 gestir á Ljósanótt – Kanna hvernig til tókst