Nýjast á Local Suðurnes

Slasaðist við gosstöðvarnar

Björg­un­ar­sveit­ir voru kallaðar út til aðstoðar ferðamanni sem hafði slasast við gosstöðvarnar í gær. Aðgerðir björgunarsveita voru nokkuð umfangsmiklar eins og vera vill í svona tilvikum.

Upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bjarg­ar seg­ir við mbl.is að ekki sé vitað um meiðsl þess slasaða, en viðkom­andi var flutt­ur með sjúkra­bíl á sjúkra­hús til aðhlynn­ing­ar.