Nýjast á Local Suðurnes

Gul viðvörun – Hvassviðri eða stormur

Veðurstofa hefur gefið út gula veðurviðvörun, en spá stofnunarinnar gerir ráð fyrir sunnan hvassviðri eða stormi, slyddu og síðar rigningu, jafnvel talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu seinnipartinn.

Búast má við miklum leysingum og auknu afrennsli. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Hlýnandi veður.