Nýjast á Local Suðurnes

Lokað fyrir umferð um Stekk vegna framkvæmda við hringtorg á Reykjanesbraut

Myndin tengist fréttinni ekki beint Mynd: Facebook/Ellert Skúlason

Vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á Reykjanesbraut við Fitjar verður lokað fyrir umferð um Stekk næstu vikurnar. Umferðarhraði hefur verið lækkaður í 50 km/klst á vinnusvæðinu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í nóvember, segir í tikynningu frá lögreglu.

Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni.