Nýjast á Local Suðurnes

Eldur kviknaði í matarvagni á Reykjanesbraut

Eldur kviknaði í matarvagni á Reykjanesbraut skammt vestan við afleggjarann að Vogum á Vatnsleysuströnd á fjórða tímanum í dag.

Vagninn var á leiðinni til Reykjavíkur með veislumat þegar kviknaði í honum, segir á vef RÚV. Dælubíll frá Brunavörnum Suðurnesja og lögregla eru á vettvangi.

Mynd: Skjáskot/Vísir