Nýjast á Local Suðurnes

Upptökur á True detective í Vogum

Í dag standa yfir tökur á sjónvarpsþættinum True detective, sem kvikmyndaframleiðandinn HBO vinnur að og fara þær að hluta til fram innan Sveitarfélagsins Voga. Jodie Foster fer með aðalhlutverkið í þáttunum, en ekki fylgir sögunni hvort hún sé á svæðinu við tökur.

Er þetta stærsta kvikmyndaverkefni sem tekið hefur verið upp á Íslandi til þessa en eins og íbúar hafa eflaust margir orðið varir við er mikill fjöldi fólks sem er að störfum í tengslum við upptökurnar.

Gert er ráð fyrir að tökur muni standa yfir í 1-2 daga. Biðjum við íbúa og sérstaklega vegfarendur um Vatnsleysustrandaveg að sýna sérstaka aðgát og tillitssemi á meðan tökum stendur, segir á Facebook-síðu sveitarfélagsins.

Mynd: Facebook / Sveitarfélagið Vogar