Nýjast á Local Suðurnes

Þyrla kölluð til vegna slyss við gosstöðvarnar

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyss við gosstöðvarnar í gærkvöldi. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslu segir að aðstæður á svæðinu hafi verið afar krefjandi.

Slysið varð í brattri brekku á Langahrygg og slasast viðkomandi einstaklingur illa á fæti.

Björgunarsveitir hafa undanfarna daga flutt sjö einstaklinga niður af fjallinu, segir á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar Þorbjörns. Þar segir jafnframt að af þeim sökum hafi stór og vel útbúinn hópur frá sveitinni farið upp á Langahrygg og sett upp 120 metra langan spotta sem hægt er að styðja sig við. Slysið í gær varð eftir að spottinn var settur upp og á þeirri leið.

Að setja upp spotta sem þennan er ekki alveg sú leið sem við hefðum kosið vegna covid19, segir í tilkynningunni, og vill björgunarsveitin minna fólk að ganga vel um svæðið, virða sóttvarnir og hvetja fólk til þess að setja spritt á hendur fyrir og eftir spottann.

Myndir: Facebook / Sigurður Magnússon