Nýjast á Local Suðurnes

Hakkarar herja á Suðurnesjaleiki

Svo virðist sem óprúttnir aðilar reyni að næla í persónuupplýsingar Suðurnesjamanna í gegnum vinsæla Facebook-deilileiki.

Þannig hefur húsgagnaverslunin Bústoð tilkynnt að leik á hennar vegum hafi verið hætt fyrr en áætlað var og dregið um vinningshafa sem fyrirtækið mun hafa samband við. Fólk er varað við að smella á tengla sem virðast koma frá versluninni og alls ekki gefa upp korta- eða persónuupplýsingar.

Þá hefur tónlistarhátíðin Í Holtunum heima tilkynnt um svipaðar tilraunir, en í þeim leik hafa hátt í þúsund manns tekið þátt en þar hafa tenglar birst í ummælum, eins og sjá má hér fyrir neðan.