Nýjast á Local Suðurnes

Umferðartafir á Reykjanesbraut seinni partinn

Mynd: Skjáskot You-tube / Ívar Gunnarsson

Vegna malbikunarframkvæmda á suðurakbraut Reykjanesbrautar milli Strandgötubrúar og Krýsuvíkurgatnamóta í dag, verður umferð frá Keflavík til Reykjavíkur færð á hjáleið um Krýsuvíkurgatnamót og Ásbraut. Umferð á leið frá Reykjavík til Keflavíkur verður færð á hjáleið um Krýsuvíkurgatnamót.

Búast má við töfum á Reykjanesbraut milli Strandgötubrúar og Krýsuvíkurgatnamóta milli kl 16:00 og 18:00.

Vegfarendur eru hvattir til að fylgja merkingum á vinnusvæðinu og virða hámarkshraða.