Nýjast á Local Suðurnes

Reyndu að taka myndir undir pils flugfreyja

Farþegi sem var á leið í flug frá Keflavíkurflugvelli til Alicante um helgina varð af ferðinni vegna ölvunar og óspekta, fyrst í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og síðan inni  í flugvélinni áður en hún tók á loft.  Viðkomandi æstist enn frekar við að fá ekki að fara með vélinni svo grípa varð til þess ráðs að flytja hana á lögreglustöð til vistunar þar til af henni bráði.

Áður hafði lögreglan á Suðurnesjum haft afskipti af hópi erlendra karlmanna sem voru að koma með flugi frá Berlín. Voru þeir staðnir að því að taka videomyndir af flugfreyjum við störf sín á síma sem þeir létu síga niður að gólfi meðfram sætunum þannig að myndavélin snéri upp við tökuna. Lögreglumenn  höfðu upp á handhafa símans og reyndist hann hafa haft lítið erindi sem erfiði með upptökunum. Kvaðst hann sjá mjög eftir þessu, baðst afsökunar og eyddi öllu efninu úr símanum í viðurvist flugfreyja og lögreglu.