Nýjast á Local Suðurnes

USi biðjast afsökunnar á lykt: “Hættuleg efni í skaðandi mæli berast ekki frá verksmiðjunni”

Verksmiðja Stakksbergs í Helguvík

United Silicon hefur sent frá sér tilkynningu vegna kvartana íbúa Reykjanesbæjar vegna lyktarmengunar sem borist hefur frá verksmiðjunni í dag. Í tilkynningunni, sem finna má í heild sinni hér fyrir neðan kemur fram að bilun í rafskauti olli því að keyra þurfti ofninn upp í morgun.  Þá kemur fram í tilkynningunni að samkvæmt mælingum norsku loftgæðastofnunarinnar NILU berist ekki hættuleg efni í skaðandi mæli frá verksmiðjunni.

Tilkynning United Silicon í heild sinni:

Kvartað hefur verið undan lykt frá verksmiðju United Silicon undanfarna daga. Ástæðan er sú að ofninn var keyrður á skertu álagi vegna vandamála með eitt rafskautið í ofninum.

Í gærkvöldi var því slökkt á ofninum þannig að hægt væri að stytta rafskautið og koma rekstri ofnsins í jafnvægi. Unnið var að þessu alla síðustu nótt og lauk verkinu í morgun. Ofninn var svo settur inn aftur klukkan 11:40 í morgun og verður keyrður upp samkvæmt venjubundnu uppkeyrsluplani. Búast má við lykt frá verksmiðjunni meðan á uppkeyrslunni stendur og vindátt er til bæjar.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem fólk verður fyrir vegna þessa. Af þessu tilefni viljum við þó minna á niðurstöður mælinga á losun frá verksmiðjunni. Norska loftgæðastofnunin, NILU hefur annast mælingarnar og samkvæmt þeim berast ekki hættuleg efni í skaðandi mæli frá verksmiðjunni. Þetta á við bæði íbúa í Reykjanesbæ og starfsmenn verksmiðjunnar.