Nýjast á Local Suðurnes

Semja um kaup á leikskóla

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt, með atkvæðum meirihluta, að ganga til samninga við Hrafnshól um kaup á leikskóla i Drekadal. Áætluð afhending leikskólans er 1. apríl 2024.

Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að ganga frá samningnum.

Margrét A. Sanders, Sjálfstæðisflokki og Margrét Þórarinsdóttir, Umbót, óskuðu eftir því á fundinum að fá heildarkostnaðaráætlun við verkið, sem hefur tvisvar sinnum verið boðið út og öllum innsendum tilboðum verið hafnað.