Nýjast á Local Suðurnes

Rannsaka andlát konu sem sakamál

Lög­reglu­stjór­inn á Suður­nesj­um hef­ur nú til rann­sókn­ar and­lát í heima­húsi þar sem kona á sex­tugs­aldri lést, en and­látið er rann­sakað sem saka­mál.

Karl­maður á sex­tugs­aldri hef­ur verið úr­sk­urðarður í gæslu­v­arðhald til 8. apríl næst­kom­andi vegna máls­ins. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu.

Þar seg­ir að unnið sé að rann­sókn máls­ins og ekki sé unnt að veita frek­ari upp­lýs­ing­ar að svo stöddu.