Nýjast á Local Suðurnes

Halda kynningarfund hagsmunasamtaka um uppbyggingu og framtíð Grindavíkur

Kynningarfundur Járngerðar, nýstofnaðra hagsmunasamtaka um uppbyggingu og framtíð Grindavíkur, verður haldinn laugardaginn 8. mars næstkomandi klukkan 11:00 í Gjánni.

Markmið samtakanna eru skýr og miða að því að vinna markvisst að endurreisn Grindavíkur og að Grindvíkingar fái að taka þátt í ákvörðunum um framtíð Grindavíkur, segir í tilkynningu.

Kynningarfundurinn verður haldinn í Gjánni. Þar verður stjórn Járngerðar kynnt og farið yfir helstu áherslur samtakanna. Einnig gefst færi á umræðum um málefnið, sem við teljum afar mikilvægt. 

Allir þeir sem hafa áhuga og trú á uppbyggingu Grindavíkur eru hvattir til að mæta á fundinn og að slást í hópinn. 

Í krafti fjöldans og með markvissum hætti náum við markmiðum okkar, segir í tilkynningunni.