Nýjast á Local Suðurnes

Rafmagn tekið af hluta Innri Njarðvíkur

Rjúfa þarf straum vegna viðhaldsvinnu í dreifistöð Innri Njarðvík, í dag, fimmtudaginn 14. mars 2019.

Rafmagnslaust verður á Guðnýjarbraut, Kirkjubraut, Kópubraut, Njarðvíkurbraut og Stapakoti á meðan vinnu stendur.

Rafmagn verður tekið af kl. 09:00 og komið á aftur eigi síðar en kl. 16:00 sama dag, segir í tilkynningu á vef HS Veita.