Nýjast á Local Suðurnes

Plokkað á laugardag – Reykjanesbær og Blái herinn taka höndum saman

Stóri plokkdagurinn fer fram laugardaginn 25. apríl og hafa Reykjanesbær og Blái herinn tekið höndum saman og sett markmiðið á að vel takist til með að hreinsa bæjarfélagið.

Til að auðvelda skipulagningu dagsins hafa starfsmenn Umhverfissviðs og Blái Herinn skipt Reykjanesbæ upp í fjögur svæði og er tilgangur með skiptingunni er að á þessum svæðum eru tilgreind söfnunarsvæði. Íbúum er auðvitað velkomið að flakka á milli svæða.

Söfnunarstaðir í Reykjanesbæ  eru eftirfarandi:

  • Blár  (Keflavík/Njarðvík) = Fyrir framan Reykjaneshöll
  • Gulur (Innri Njarðvík) = Akurskóli
  • Fjólublár (Ásbrú) = Leikskólinn Völlur
  • Hafnir – Félagsheimilið

Nokkur góð heilræði fyrir helgina:

  • Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
  • Hafa hanska, plokkur og ruslapoka við höndina meðan á plokki stendur
  • Klæða sig eftir aðstæðum
  • Virðum tveggja metra regluna

Blái herinn mun dreifa sekkjum á söfnunarstaði þar sem plokkarar geta komið frá sér ruslinu sem plokkað er. Starfsmenn Reykjanesbæjar og Blái herinn munu svo tæma og fjarlægja sekkina þegar átakið er búið.