Ókeypis dömubindi í Sambíóunum
Mynd: Facebook/SambíóinBoðið verður upp á ókeypis dömubindi fyrir viðskiptavini sína í öllum kvikmyndahúsum Sambíóana, þar með talið í kvikmyndahúsi keðjunnar í Reykjanesbæ. Frá þessu var greint á Facebook-síðu Fríðindaklúbbs fyrirtækisins í gær og er þjónustan þegar komin í gang.
„Það er ekki farið að reyna neitt á þetta í kvikmyndahúsunum en við erum að fá fínar viðtökur á samfélagsmiðlum. Ég held að þetta sé jákvætt og okkur þykir þetta eðlileg þjónusta.“ Sagði Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins í spjalli við mbl.is




















