Nýjast á Local Suðurnes

Loka snemma fyrir aðgang að gossvæðinu vegna hegðunar fólks

Í dag er opið inn á gossvæðið frá Suðurstrandarvegi. Gönguleiðum inn á svæðið verður lokað kl. 18 í dag, þar sem erfiðlega gekk að hafa stjórn á fólki í gærkvöldi og nú sem oft áður er það tiltölulega fámennur hópur sem skemmir fyrir öllum hinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu, en þar segir einnig að það hefur framangreindar afleiðingar að loka þarf gönguleiðum tímanlega í stað þess að halda úti fjölmennum hópi viðbragðsaðila allan sólarhringinn við að eltast við einstaklinga með lélega dómgreind. Takmarkaður hópur viðbragðsaðila hefur ekki getu eða afl til að leiðbeina og gefa fólki fyrirmæli við þessar aðstæður.
Á landakorti lítur svæðið sakleysislega út en margir átta sig engan veginn á vegalengdum eða stærð svæðisins.

Vigdísarvallavegi verður lokað kl. 18 í dag eða á sama tíma og gönguleiðum er lokað. Er það gert af öryggisástæðum.

Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið. Ganga þarf um 18 km leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum. Gangan fram og til baka getur tekið 5 til 7 klukkustundir. Aðrar merktar gönguleiðir eru jafnframt opnar. Meradalaleið (leið D) var opnuð daginn eftir að gos hófst. Leiðin liggur til norðausturs frá bílastæði í Stóra Leirdal í átt að útsýnisstað á Hraunsels – Vatnsfelli.

Talinn fjöldi í gær á Meradalaleið: 1.813.
Eldri gönguleiðir: 880.

Lögreglumenn, björgunarsveitarmenn, landverðir og sjúkraflutningamenn eru á svæðinu í dag. Erfiðlega hefur gengið að manna gosvaktir á þessum árstíma.
Gossvæðinu var lokað kl. 23:30 í gærkvöldi þar sem hópur fólks var ekki að fara að fyrirmælum lögreglu og björgunarsveita um að fara ekki inn á merkt hættusvæði. Gönguleiðum var því lokað niður við Suðurstrandarveg.

Áætlar lögregla að um 600 manns hafi verið á svæðinu seint í gærkvöldi. 20 björgunarsveitarmenn voru á vakt á svæðinu í gærkvöldi og fram á nótt. 6 lögreglumenn voru þar við gæslustörf.
Þegar mest var áætlar lögregla að um 600 manns hafi verið á svæðinu.

Eitthvað var um að aðstoða þyrfti einstaklinga sem höfðu örmagnast á göngu.
Sem fyrr þá gengur ekki í öllum tilfellum vel að biðja fólk um að halda sig utan hættusvæðis. Við biðjum því fólk um að haga sér í samræmi við fyrirmæli lögreglu og björgunarsveita og fara ekki inn á merkt hættusvæði.

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Mælt er með því að fólk noti rykgrímur til að forðast mengun frá gróðureldum. Fólk fer að gosstöðvunum á eigin ábyrgð. Þá er lögð áhersla á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu, eða þungaðar konur. Það er vegna hugsanlegrar gasmengunar en einnig vegna reyksins frá gróðureldum. Þá er gangan löng og reynist mörgum erfið.

Göngumenn klæði sig eftir veðri, taki með sér nesti og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.

Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.

Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi.

Sjá jafnframt upplýsingar á https://safetravel.is/ https://www.almannavarnir.is/ https://www.vedur.is/ https://www.visitreykjanes.is/en https://loftgaedi.is/loftgaedi.is Fjölmiðlar veki sérstaklega athygli á þessum heimasíðum.

Akstur utan vega er bannaður.

Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila. Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu:

Suðaustan 3-8 m/s, gasmengun berst því til norðvesturs í átt að Vogum, Garði og Reykjanesbæjar og getur gasið náð til Snæfellsness. Gömul gasmengun er yfir Suður- og Vesturlandi og jafnvel víðar á landinu. Norðvestan 3-8 við gosstöðvarnar seint í dag og þá blæs gasinu til suðausturs.
Spá gerð: 21.07.2023 21:31. Gildir til: 22.07.2023 23:59.