Nýjast á Local Suðurnes

Launþegar fá bakreikning vegna útsvars – Stefnt að lækkun árið 2018

Launþegar búsettir í Reykjanesbæ geta átt von á því að fá bakreikning í sumar sem nemur rúmum 5 þúsund krónum í viðbótarútsvar fyrir hverja milljón krónur í tekjur. Launþegi með 5 milljónir í heildartekjur gæti því átt von á bakreikningi uppá kr. 26 þús., launþegi með 10 milljónir kr. 53 þús. o.s.frv.

Þetta mun vera vegna þess að Fjársýsla ríkisins, sem sér um að innheimta útsvar mánaðarlega af öllu launafólki, innheimtir hins vegar meðalútsvar allra sveitarfélaga á landi, sem nú er 14,44%,  af öllum launþegum á Íslandi óháð búsetu. Síðan þegar endanleg álagning birtist þann 1. júlí í sumar verða gerðar leiðréttingar til hækkunar eða lækkunar eftir því sem útreikningar skattayfirvalda segja til um. Útsvar í Reykjanesbæ hærra en annars staðar á landinu eða 15,05%, vegna slæmrar fjárhagslegrar stöðu sveitarfélagsins.

Í áætlunum Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir að útsvarið verði 15,05% út árið 2017 en stefnt að því að lækka það aftur í 14,52% þann 1. janúar 2018.