Lögregla stöðvaði tugi bifreiða – Ökumenn til fyrirmyndar
![lögreglan](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/lögreglan.jpg?resize=493%2C264)
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tugi bifreiða í nótt á Ásbrú, þar sem ATP – tónlistarhátíðin fer nú fram. Um var að ræða eftirlit með ölvunarakstri og ökuréttindum. Reyndist hver einasti ökumaður með allt sitt á hreinu.
Hátíðina sóttu í gærkvöld um þrjú þúsund gestir og lét fólk vel af veru sinni þar.