Nýjast á Local Suðurnes

Lítið barn brenndist

Lítið barn brenndist um helgina í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum þegar það náði að teygja sig í bolla með heitu vatni, sem stóð á borði á heimili þess, og hella yfir sig.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að barnið hafi verið flutt á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi og að ekki sé vitað nánar um líðan þess.