Nýjast á Local Suðurnes

Konur skipa fimm efstu sætin hjá Dögun í Suðurkjördæmi

Ragnhildur skipar fyrst sætið á lista Dögunar, en Davíð Páll er efstur karla í sjötta sæti

Dögun hefur tilkynnt framboðslista sinn fyrir komandi alþingiskosningar, en flokkurinn, líkt og flestir aðrir, býður fram í Suðurkjördæmi. Athygli vekur að fimm efstu sæti listans eru skipuð konum, en Ragnhildur L. Guðmundsdóttir mun skipa fyrsta sæti listans og Aníta Engley annað sætið.

Frambjóðendur í fyrstu 10. sætum lista Dögunar í Suðurkjördæmi til alþingiskosninga 28. október nk.

1.      Ragnhildur L. Guðmundsdóttir, kennari og náms- og starfsráðgjafi
2.      Aníta Engley, húsmóðir og nemi
3.      Ásta Bryndis Schram, lektor HÍ
4.      Gunnhildur H. S. Magnúsdóttir, húsmóðir og nemi
5.      María Líndal, byggingafræðingur
6.      Davíð Páll, afgr.maður
7.      Haukur Hilmarsson, ráðgjafi í fjármálahegðun
8.      Eyrún Sif Rögnvaldsdóttir, húsmóðir og nemi
9.      Jóhanna Ásta Þórarinsdóttir, nemi
10.     Gunnar Skuli Ármannsson, læknir