Nýjast á Local Suðurnes

Innbrotsþjófar staðnir að verki

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo menn eftir að þeir voru staðnir að verki við að brjótast inn í íbúðarhús í Keflavíkurhverfi Reykjanesbæjar síðastliðinn föstudag.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að mennirnir hafi komist inn með því að spenna upp glugga með skóflu. Sömuleiðis hafi svalahurð verið spennt upp.

Annar maðurinn var handtekinn á vettvangi þar sem hann var að bera þýfi út úr húsinu. Hann fleygði því frá sér þegar hann varð lögreglu var. Hann játaði sök.

Við öryggisleit á honum fundust nær 100 þúsund krónur og voru þær haldlagðar vegna gruns um að um væri að ræða illa fengið fé.

Hinn maðurinn var handtekinn á höfuðborgarsvæðinu og játaði hann einnig sök, segir í tilkynningunni.