Nýjast á Local Suðurnes

Gular veðurviðvaranir vegna rigninga

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna rigninga um allt land, þar á meðal á Suðurnesjum.

Gert er ráð fyrir talsverðri eða mikilli rigningu. Afrennsli veldur miklu álagi á fráveitukerfi, segir í tilkynningu. Mikilvægt er að hreinsa ræsi og niðurföll til að forðast vatnstjón. Einnig, þarf að fylgjast þarf vel með kjöllurum og skemmum, sem gætu orðið fyrir vatnstjóni.