Ekki króna í ríkiskassann eftir umferðareftirlit lögreglu við FLE

Lögreglumenn á Suðurnesjum með umferðareftirlit við Flugstöð Leifs-Eiríkssonar í kvöld þar sem lögð var áhersla á kanna með réttindi sem og ástand ökumanna. Á milli 80 og 90 bifreiðar voru stöðvaðar og rætt við ökumenn þeirra.
Gaman er að segja frá því að allir ökumenn sem við ræddum við í kvöld voru með sitt á hreinu og kom ekki króna í ríkiskassann, segir í Facebook-færslu lögreglu.