Nýjast á Local Suðurnes

Grunur um Keflavíkurflugvöllur sé nýttur til að smygla fólki til Bandaríkjanna og Kanada

Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu vegna máls sem upp kom í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á dögunum, og tengist smygli á fólki frá Suður-Evrópu til Bandaríkjanna. Í tilkynningunni kemur meðal annars fram að grunur leiki á að leiðin um Keflavíkurflugvöll sé nýtt til að smygla fólki til Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada.

Tilkynning lögreglu í heild sinni:

Vegna framkominna fyrirspurna þykir lögreglunni á Suðurnesjum rétt að eftirfarandi komi fram varðandi upprætingu skipulagðra glæpasamtaka sem grunuð eru um smygl á fólki frá Suður-Evrópu til Bandaríkjanna, með viðkomu m.a. í Finnlandi og á Íslandi.

Lögreglan á Suðurnesjum hóf rannsókn þessa tiltekna máls í janúar 2017, eftir að tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar höfðu stöðvað tvo einstaklinga sem kváðust ekki þekkjast þótt sami aðili hefði greitt farmiða þeirra. Við rannsókn málsins kom meðal annars í ljós að annar mannanna ferðaðist á stolnu vegabréfi. Hann var því handtekinn. Lögreglan handtók einnig hinn manninn vegna gruns um aðild hans að því að flytja fólk með ólögmætum hætti yfir landamæri.

Upplýsingum sem fram komu við lögreglurannsóknina var miðlað til erlendra lögregluyfirvalda í gegnum Europol. Þær upplýsingar leiddu til þess að landamæraeftirlitið í Finnlandi upprætti, með stuðningi Europol og bandarískra yfirvalda, skipulögð glæpasamtök sýrlenskra og íraskra borgara. Samtökin eru grunuð um að hafa reynt að smygla fólki frá suður­hluta Evr­ópu til Finn­lands og þaðan til Banda­ríkj­anna í gegn­um Ísland og Mexí­kó. Finnsk yf­ir­völd hafa hand­tekið fjóra liðsmenn í glæpa­samtökunum og fram­kvæmt hús­leitir í fjór­um hús­um í Hels­inki, Vantaa og Tam­p­ere í Finn­landi. Fjöldi farsíma var meðal ann­ars gerður upp­tæk­ur í hús­leit­inni. Jafnframt fundust þúsund­ir evra í reiðufé í plast­pok­um.

Grunur hefur legið á að leiðin um Keflavíkurflugvöll hafi verið og sé nýtt til að smygla fólki m.a. frá Evrópu til Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada. Ofangreindar málalyktir renna enn frekari stoðum undir þann grun. Virkt landamæraeftirlit, ekki síst á Keflavíkurflugvelli, er afar mikilvægt, eins og ofangreindar málalyktir staðfesta, og brýnt að efla lögregluna á Suðurnesjum til að sinna því starfi. Jafnframt eru alþjóðlegt samstarfs lögreglu og miðlun upplýsinga lykilatriði þegar stemma skal stigu við skipulagðri glæpastarfsemi sem þessari.