Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða íbúum sand til hálkuvarna

Reykjanesbær býður bæjarbúum sand í fötu fyrir hálkuvarnir í sínu nærumhverfi þegar þurfa þykir.

Hægt er að nálgast sand úr sandhrúgum á fimm stöðum í Reykjanesbæ, sem merktir eru með rauðum punktum á yfirlitskorti:

  • á plani við Heiðarberg
  • fyrir framan Reykjaneshöll
  • við leikskólann Holt
  • fyrir aftan „Top of the rock“ Ásbrú
  • við samkomuhúsið í Höfnum