Álagningarseðlar fasteignagjalda einugis á rafrænu formi
![bokasafn reykjanesb](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/03/bokasafn-reykjanesb.jpg?resize=620%2C264)
Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda verða nú einungis á rafrænu formi og birtir á vefnum island.is og á íbúavef Reykjanesbæjar, mittreykjanes.is
Þó geta þeir sem þess óska fengið senda álagningar- og/eða greiðsluseðla með bréfpósti með því að hafa samband við þjónustuver Reykjanesbæjar í síma
421 6700 eða netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is
Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast eingöngu sem kröfur í netbanka og eru innheimtar þar, en greiðendur 76 ára og eldri fá þó áfram seðla.
Gjöld ársins dreifast á 10 gjalddaga sem eru fyrsta dag hvers mánaðar frá og með 1.febrúar.
Fasteignaeigendum er bent á boðgreiðslur með greiðslukortum og beingreiðsluþjónustu bankanna til hagræðis.