Nýjast á Local Suðurnes

Áfengispelaþjófur handtekinn í Vínbúðinni

Karlmaður, sem grunaður er um að hafa verið á ferðinni um skeið og hnuplað varningi úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, var í fyrradag handtekinn eftir tilraun til þjófnaðar úr vínbúð. Maðurinn hafði heimsótt sömu verslun fyrir nokkrum dögum og þá stolið áfengispela.  Á upptöku úr öryggismyndavél sást til kauða við það athæfi og þegar hann mætti aftur í vínbúðina í vikunni, sömu erinda, handtók lögreglan á Suðurnesjum hann.

Til viðbótar við önnur brot var hann með kannabis í tösku sem hann hafði meðferðis í vínbúðina.