Nýjast á Local Suðurnes

Wizz Air flýgur til Vilnius – Verður eitt umsvifamesta erlenda flugfélagið hér á landi

Það stefn­ir í að Wizz Air verði eitt um­svifa­mesta er­lenda flug­fé­lagið hér á landi yfir vetr­ar­mánuðina, en flugfélagið hyggst hefja flug milli Keflavíkurflugvallar og Vilnius í Litháen í október á þessu ári. Flogið verður tvisvar sinnum í viku, á mánudögum og föstudögum, allt árið um kring. Flugfélagið flýgur nú þegar frá Keflavík til Gdansk í Póllandi og Budapest í Ungverjalandi auk þess sem Varsjá bætist við í maí á þessu ári. Vilnius verður því fjórði áfangastaður flugfélagsins frá Íslandi.
Wizz Air er sem áður segir ungverskt flugfélag og stærsta lággjaldaflugvélagið í Mið- og Austur-Evrópu. Félagið hóf flug á milli Gdansk og Keflavíkurflugvallar í júní í fyrra, fyrst tvisvar í viku en fjölgaði ferðum fljótlega upp í þrjár. Nú tilkynnir félagið um fjórða áfangastaðinn frá Íslandi. Það er því ljóst að félagið bindur miklar vonir við Ísland sem áfangastað.