Nýjast á Local Suðurnes

Sex Sandgerðingar töpuðu með 76 stiga mun á Akureyri

Reynismenn úr Sandgerði sitja sem fastast á botni 1. deildarinnar í körfuknattleik, liðið hefur tapað öllum átta leikjum sínum til þessa. Reynismenn heimsóttu Þórsara á Akureyri í dag og er óhætt að segja að sú ferð hafi ekki verið til fjár, liðið tapði með 76 stiga mun.

Reynismenn mættu þjálfaralausir og með aðeins sex leikmenn til leiks á Akureyri á móti fullmönnuðu toppliði Þórs, þreyta sagði því fljótt til sín hjá Sandgerðingum sem skoruðu aðeins 19 stig í fyrri hálfleik gegn 59 stigum Þórsara.

Síðari hálfleikurinn var á sviðuðum nótum, segir á Karfan.is, en þar má finna ítarlega umföllun um leikinn, Þórsarar leyfðu yngri mönnum að spreyta sig á löngum stundum í leiknum og juku á forskotið eftir því sem á hann leið. Lokatölur urðu 116-40 heimamönnum í vil og Reynismenn sitja enn án stiga á botni deildarinnar.

Róbert Ingi Arnarsson skoraði 12 stig fyrir Reynismenn, Brynjar Þór Guðnason 9 og Garðar Gíslason skoraði 8 og tók 10 fráköst.