Helgi Þór gengur til liðs við Njarðvíkinga
![fotbolti](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/07/fotbolti.jpg?resize=620%2C264)
Helgi Þór Jónsson skrifaði á dögunum undir samning um að leika með Njarðvík í knattspyrnunni í sumar. Helgi Þór kemur frá Víði þar sem hann hefur leikið 72 leiki og gert 31 mark með félaginu. Í sumar skoraði Helgi Þór 10 mörk í 16 leikjum, tvö af þessum mörkum komu gegn Njarðvík á Njarðtaksvelli.
Helgi Þór sem er 23 ára stundar nám í USA og verður tilbúinn í slaginn í upphafi móts, segir í tilkynningu frá Knattspyrnudeild Njarðvíkur.