Nýjast á Local Suðurnes

Grindvíkingar stefna á sjötta bikarmeistaratitilinn

Grindvíkingar eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld þegar liðið mætir KR-ingum í undanúrslitum Powerade-bikarkeppninnar í körfuknattleik. Grindvíkingar sem hafa unnið bikarinn fimm sinnum setja stefnuuna á að fylgja í fótspor kvennaliðsins og komast í úrslitaleikinn og vinna þar sinn sjötta bikartitil.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 í Mustad-höllinni í Grindavík og eru Grindvíkingar hvattir til að mæta á leikinn og taka með sér gesti.

“nú þurfa ALLIR GRINDVÍKINGAR að draga 1 með sér og mæta í gulu og styðja sína menn! Mætum og hjálpum strákunum við hafa ALLA Laugardalshöllina GULA OG GLAÐA í bikarúrslitunum 2016!” Segir á Facebook-síðu Kkd. Grindavíkur.