Töfrar og skemmtilegheit á þjóðhátíðardaginn í Vogum

Þjóðhátíðardagskráin í Vogum hefst klukkan 14:00 og verður hjá Tjarnasalnum í Stóru Vogaskóla.
Kvenfélagið sér um kaffisölu og Lionsklúbburinn verður með gotterí til sölu líka. Hoppukastalar í mismunandi stærðum fyrir börn á mismunandi aldri. Það verður í boði að fara á hestbak.
Klukkan 16:00 kemur Einar Aron töframaður og verður með rosalega skemmtilegt skemmtiatriði fyrir bæði börn og fullorðna, segir á vef sveitarfélagsins.