Karamelluregn og sirkuslistir í Grindavík á þjóðhátíðardaginn
![grindavik](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/08/grindavik.jpg?resize=620%2C264)
Hátíðarhöld á þjóðhátíðardaginn í ár, í Grindavík, munu að mestu fara fram á Grindavíkurvelli og í Kvikunni.
Á Grindavíkurvelli gefst börnum kostur á að taka þátt í skemmtilegu hlaupi umhverfis fótboltavöllinn þar sem komið verður fyrir einfaldri þrautabraut. Allir þáttakendur fá þáttökuverðlaun við komuna í mark. Í framhaldi af hlaupinu mun flugvél fljúga yfir æfingarsvæðið við Hópið og láta karamellum rigna.
Að lokinni dagskránni á Grindavíkurvelli færist þungi hátíðarhaldanna í Kvikuna þar sem börnin geta hoppað í hoppuköstulum, farið á hestbak og séð sirkuslistamenn leika listir sínar. Þá verður boðið upp á kaffiveitingar í tilefni dagsins.
Ávarp fjallkonu verður rafrænt í ár og gert aðgengilegt á grindavik.is að morgni þjóðhátíðardagsins.
Dagskrá 17. júní 2021
8:00 Fánar dregnir að húni
10:00 Hátíðarguðsþjónusta í Grindavíkurkirkju
- Hólmfríður Árnadóttir skólastjóri í Sandgerði flytur hátíðarræðu
- Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur organista
- Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari
- Kaffiveitingar eftir messu
13:00 17. júní hlaup og karamelluregn á Grindavíkurvelli fyrir 12 ára og yngri
14:00-16:00 Hátíðaropnun í Kvikunni
- Hoppukastalar fyrir börnin
- Sirkus Íslands verður á svæðinu
- Börnum boðið á hestbak milli 14:30 og 16:30
- Húllahringir og krítar í Húllinu
- Ljósmyndasýning Baldurs Þorvaldssonar
- Kaffiveitingar í boði í tilefni dagsins
- Sýningin Saltfiskur í sögu þjóðar opin á efri hæðinni
Ávarpi fjallkonu verður streymt á grindavik.is.