Nýjast á Local Suðurnes

Karamelluregn og sirkuslistir í Grindavík á þjóðhátíðardaginn

Hátíðarhöld á þjóðhátíðardaginn í ár, í Grindavík, munu að mestu fara fram á Grindavíkurvelli og í Kvikunni.

Á Grindavíkurvelli gefst börnum kostur á að taka þátt í skemmtilegu hlaupi umhverfis fótboltavöllinn þar sem komið verður fyrir einfaldri þrautabraut. Allir þáttakendur fá þáttökuverðlaun við komuna í mark. Í framhaldi af hlaupinu mun flugvél fljúga yfir æfingarsvæðið við Hópið og láta karamellum rigna. 

Að lokinni dagskránni á Grindavíkurvelli færist þungi hátíðarhaldanna í Kvikuna þar sem börnin geta hoppað í hoppuköstulum, farið á hestbak og séð sirkuslistamenn leika listir sínar. Þá verður boðið upp á kaffiveitingar í tilefni dagsins. 

Ávarp fjallkonu verður rafrænt í ár og gert aðgengilegt á grindavik.is að morgni þjóðhátíðardagsins. 

Dagskrá 17. júní 2021

8:00 Fánar dregnir að húni

10:00 Hátíðarguðsþjónusta í Grindavíkurkirkju

  • Hólmfríður Árnadóttir skólastjóri í Sandgerði flytur hátíðarræðu
  • Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur organista
  • Sr. Elínborg Gísladóttir þjónar fyrir altari
  • Kaffiveitingar eftir messu

13:00 17. júní hlaup og karamelluregn á Grindavíkurvelli fyrir 12 ára og yngri

14:00-16:00 Hátíðaropnun í Kvikunni

  • Hoppukastalar fyrir börnin
  • Sirkus Íslands verður á svæðinu
  • Börnum boðið á hestbak milli 14:30 og 16:30
  • Húllahringir og krítar í Húllinu
  • Ljósmyndasýning Baldurs Þorvaldssonar
  • Kaffiveitingar í boði í tilefni dagsins
  • Sýningin Saltfiskur í sögu þjóðar opin á efri hæðinni

Ávarpi fjallkonu verður streymt á grindavik.is.