Nýjast á Local Suðurnes

Þórarinn Ingi tilnefndur sem maður ársins

Suðurnesjamaðurinn Þórarinn Ingi Ingason, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, er í hópi þeirra sem tilnefnd eru sem maður ársins á Vísi.is.

Þórarinn og áhöfn hans bökkuðu þyrlu Landhelgisgæslunnar inn Skutulsfjörð við krefjandi aðstæður þegar koma þurfti sjúklingi undir læknishendur í Reykjavík, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Hægt er að kjósa mann ársins á vef Vísis.