Nýjast á Local Suðurnes

Styrkja fjárhagslega illa stadda nemendur til kaupa á námsbókum

Stjórn minningarsjóðs Gísla Torfasonar hefur ákveðið að veita skuli styrki úr sjóðnum í janúarmánuði ár hvert. Sjóðurinn var stofnaður með það fyrir augum, að styrkja nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem eiga í ýmis konar erfiðleikum og þar með fylgja eftir því góða starfi sem Gísli vann í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Í ár er ætlunin að styrkja fjárhagslega illa stadda nemendur til kaupa á námsbókum. Á heimasíðu skólans er að finna frekari upplýsingar, en þar kemur einnig fram að nefnd muni vinna úr umsóknunum sem berast og að öllum umsóknum verði svarað.