Nýjast á Local Suðurnes

Keflavíkurflugvöllur gæti tekið við 10 milljón farþegum á ári með betra skipulagi

Árið 2015 fóru 4.855.505 farþegar um Keflavíkurflugvöll, einni milljón fleiri en árið 2014. Fjöldinn hefur aldrei verið meiri og er um að ræða 25,5% aukningu frá fyrra ári. Með betri dreifingu yfir daginn væri þó hægt að nýta flugvöllinn mun betur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá rekstraraðila flugvallarins, Isavia.

Mestu álagstímar sólarhringsins eru þeir tímar sem íslensku félögin Icelandair og WOW nota til þess að tengja Evrópu og Norður-Ameríku, en tímarnir á milli þessara álagspunkta eru vannýttir. Með betri nýtingu flugvallarins og aukningu á milli aðalálagstíma sólarhringsins gæti flugvöllurinn tekið við hátt í 10 milljónum farþega á ári hverju þegar framkvæmdunum sem nú standa yfir er lokið. Það liggja því mikil tækifæri fyrir Isavia, flugfélögin og Ísland í betri nýtingu núverandi mannvirkja á meðan unnið er að stækkunarframkvæmdum.

Nú er unnið að mestu stækkunum flugstöðvarinnar frá því hún var byggð árið 1987 auk þess sem leitað er allra leiða til að bæta nýtingu núverandi mannvirkja. Um þessar mundir eru 16 þúsund fermetrar í byggingu, þar af komast níu þúsund í gagnið á árinu 2016 og sjö þúsund til viðbótar árið 2017. Í þróunaráætlun flugvallarins er þá gert ráð fyrir að flugstöðin verði 140 þúsund fermetrar árið 2032, sem er ríflega tvöföldun á núverandi mannvirki.

Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia segir að leita þurfi leiða til að nýta núverandi mannvirki betur:

“Nú þurfum við, í samvinnu við flugfélögin, að leita leiða til að nýta núverandi mannvirki betur svo stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar, ferðaþjónustan, geti haldið áfram að vaxa næstu árin.”