Skilaði af sér um 30 pakkningum af kókaíni á lögreglustöð
![logr finiefni2](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2018/01/logr-finiefni2.jpg?resize=620%2C264)
Erlend kona var í lok síðasta mánaðar handtekin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir að tollgæsla stöðvaði hana vegna gruns um fíkniefnasmygl.
Lögreglan á Suðurnesjum færði konuna á lögreglustöð þar sem hún skilaði af sér um það bil 30 pakkningum af kókaíni. Var um tæp 400 grömm af efninu að ræða. Konan var úrskurðuð í gæsluvarðhald meðan rannsókn málsins fór fram. Rannsóknin er nú á lokastigum.