Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða upp á fuglaskoðunargöngu

Allir eru velkomnir að taka þátt í fuglaskoðunargöngu í Sólbrekkuskógi laugardaginn 17. september næstkomandi klukkan 10:00.

 Guðmundur Falk fuglaljósmyndari og Hannes Þór Hafsteinsson fuglaáhugamaður fræða gesti um fuglalífið í Sólbrekkuskógi og nágrenni. Einnig munu þeir ræða almennt um hvernig maður ber sig að við fuglaskoðun.

Þeir félagar hafa um árabil stundað merkingar og fóðurgjafir og fylgst með fuglum hér suður með sjó og eru manna fróðastir um þau mál.

Í tilkynningu á vef Reykjanesbæjar segir jafnframt að grillaðstaða og leiktæki séu á sínum stað.