Nýjast á Local Suðurnes

Rúta stuðningsmanna Njarðvíkur endaði utanvegar

Hópferðabifreið, sem ferjaði stuðningsmenn körfuknattleisliðs Njarðvíkur á undanúrslitaleik, fór útaf á Reykjanesbraut og hafnaði á ljósastaur.

Engin slys urðu á fólki, samkvæmt fésbókarsíðu stuðningsmanna Njarðvíkur og mun önnur rúta sækja fólkið og koma því á áfangastað. Aðstæður á Reykjanesbraut eru erfiðar í augnablikinu, mikil hálka og lélegt skyggni.