Nýjast á Local Suðurnes

Pilt­ur á raf­magns­hlaupa­hjóli ók á unga stúlku

Pilt­ur á raf­magns­hlaupa­hjóli ók á tíu ára stúlku í Reykjanesbæ, í vikunni. Stúlkan skall með höfuðið í jörðina og missti meðvit­und.

Stúlk­an var flutt með sjúkra­bif­reið á heil­brigðis­stofn­un Suður­nesja þar sem hún dvaldi á meðan hún var að jafna sig. Málið var til­kynnt til barna­vernd­ar­nefnd­ar, segir í tilkynningu lögreglu.