Hluti Suðurnesjabæjar án rafmagns frá miðnætti
![rafmagn rafmagnsmælir](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/03/electricity-meter-96863_1280.jpg?resize=620%2C264)
Vegna viðhaldsvinnu í dreifistöð við Suðurgötu Suðurnesjabæ (Sandgerði), miðvikudaginn. 21.10.20 er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur. þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Veitum.
Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 (miðnætti) og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 07:00 að morgni 22.10.20.