Opna bæjarskrifstofur á ný í Grindavík

Bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar munu opna að fullu aftur að Víkurbraut 62 í Grindavík mánudaginn 10. mars.
Stór hluti starfseminnar hefur frá rýmingu bæjarins verið í Tollhúsinu í Reykjavík, meðal annars vegna nálægðarinnar við Grindavíkurnefndina, en bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur nú tekið ákvörðun um að flytja skrifstofurnar alfarið aftur heim.
Bæjarstjórn Grindavíkur bókaði eftirfarandi á fundi sínum í gær:
Bæjarstjórn Grindavíkur hefur ákveðið að bæjarskrifstofur sveitarfélagsins flytji alfarið úr Tollhúsinu heim til Grindavíkur.
Bæjarstjórn telur þessar breytingar vera gott skref til stuðnings við uppbyggingu í Grindavík. Grindavíkursamfélagið er sterkt og metnaðarfullt um uppbyggingu bæjarfélagsins, við erum meðvituð um stöðuna en hugsum vongóð heim.
Bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar verða opnar kl. 9-15 mánudaga til fimmtudaga en 9-13 á föstudögum.