Nýjast á Local Suðurnes

Hægt að skoða Grindavík í þrívídd

Verkfræðistofan Efla hef­ur klárað vinnslu á þrívídd­armód­eli af Grinda­vík til að meta bet­ur skemmd­ir af völd­um jarðhrær­ing­anna í nóv­em­ber.

Fleiri en 60 dróna­flug voru nýtt til þess að búa til þrívídd­armód­elið, sem Efla gerði fyr­ir Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands.

Upp­lýs­ing­arn­arnar hafa nú verið gerðar aðgengi­leg­ar fyr­ir íbúa og aðra hagaðila sem kunni að hafa not af þeim gögn­um sem nú liggja fyr­ir.

Þrívídd­armód­elið er aðgengi­legt öll­um en þar er hægt að skoða Grinda­vík­ur­bæ eins og hann leit út eft­ir jarðskjálft­ana 10. nóv­ember síðastliðinn.