Fundu ferðatösku fulla af þýfi í flugstöðinni

Flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning þess efnis að ferðataska hefði verið skilin eftir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og eigandinn líklega farinn úr landi.
Þar sem taskan var ómerkt var hún opnuð í þeirri viðleitni að bera örugg kennsl á eiganda hennar. Þegar hún var opnuð vaknaði grunur um að flest það sem hún hafði að geyma væri þýfi. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós hver eigandi töskunnar var og að hann væri farinn af landi brott. Lögregla vinnur að lausn málsins.