Farþegar með framlengd vegabréf í vandræðum
Lögreglan á Suðurnesjum hefur fengið nokkur símtöl frá farþegum sem voru á leið til Norðurlandanna en þar sem þeir voru með framlengd vegabréf komust þeir ekki leiðar sinnar. Samkvæmt frétt á mbl.is gat lögregla ekkert gert fyrir farþegana heldur urðu þeir að leita á skrifstofu sýslumanns.
Lögreglan á Suðurnesjum framlengdi áður sjö til tíu vegabréf á degi hverjum og var tekin upp sú regla, eftir að breytingarnar lágu fyrir, að afhenda þeim sem fengu framlengingu upplýsingar um þær.
Þeir sem hafa nú undir höndum framlengd vegabréf og þurfa á flýtiútgáfu nýs vegabréfs að halda munu greiða fyrir slíka útgáfu sama gjald og um venjulega útgáfu væri að ræða til næstu áramóta gegn framvísun framlengds vegabréfs.
Umsókn um vegabréf tekur að jafnaði 9 virka daga, þar er meðtalinn sendingartími á umsóknarstað eða til umsækjanda (innanlands). Athugið að ekki er hægt að sækja vegabréf í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands nema þegar um hraðafgreiðslu er að ræða.